|
TÆKNILEGAR UPLÝSINGAR
"System Expo" er uppröðun á ljósakeðjum sem beint er að neytendamarkaði. Þetta eru einhverjar öruggustu og um leið sveigjanlegustu ljósakeðjur til utanhúss skreytinga. Kerfið er stækkanlegt og mikill fjöldi aukahluta er fáanlegur. Það þarf hins vegar að gæta að tveimur takmörkunum til að forðast að yfirhlaða kerfið: Hám 2,000 wött - sem þýðir að heildarorka sem tengd er við fyrsta kapalinn (START kapalinn) má ekki fara yfir 2000 W. Wattafjöldinn fyrir hverja byrjunar og aukaeiningu er merktur á pakkningu hennar og einnig á vörutenglinum hér til vinstri. Hám. 100 "kerfis metrar" (system metres) - sem þýðir að heildarlengd kaplanna má ekki fara yfir 100 metra eftir byrjunarkapalinn, en þá þarf einnig að hafa hugfast að vegna forms á sumum einingunum geta lengdarmetrar verið lengri en einingin sjálf, og því höfum við einnig breytt sérhverri einingarlengd í "kerfismetra". "Kerfismetrar" hverrar einingar eru einnig sýndir á pakkningu hverrar einingar en einnig undir vörutenglinum hér til vinstri.

Allir hlutar í "System Expo" eru prófaðir og löggildir af "Intertek ETL Semko" (Sænska Raffangaprófunin). Merkingin IP 44 gefur til kynna að kerfið hefur verið samþykkt til notkunar utanhúss.

Wattafjöldi: 26,5 + 26,5 + 0 + 54 + 48 + 16 + 48 + 16 + 48 + 0 = 283 W. OK!
Kerfis metrar: 5 + 13 + 0 + 25 + 3 + 1 + 3 + 1 + 3 + 0 = 54 "system metres" OK!
|